HSÍ undirritaði nýverið samstarfssamning við Nettó. Það er mikið fagnaðarefni að jafn öflugt fyrirtæki eins og Nettó komi til samstarfs við handboltahreyfinguna á Íslandi og vonast HSÍ til þess að eiga gott samstarf við Nettó í framtíðinni.

„Við í handboltahreyfingunni gleðjumst yfir því að Nettó hafi valið að vinna með okkur og verði með vörumerki sitt á keppnissetti allra landsliða HSÍ. Öflugt starf HSI byggir á góðum tengslum við atvinnulífið, og það að fyrirtæki eins og Nettó sem er öflugur bakhjarl íþrótta á Íslandi komi til liðs við okkur hjá HSÍ staðfestir það“. Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ.

Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Samkaupa segir að Nettó sé stoltur stuðningsaðili handknattleikssambands Íslands.
Það sé markmið Nettó að styðja við margþætt íþrótta, æskulýðs- og forvarnarstarf á landsvísu sem stuðlar að heilbrigðum lífsstíl.
Þessir þættir endurspeglast í samstarfinu við HSÍ. Á næstu vikum munum við fara í sameiginlegt átak að fjölga ungum iðkendum í handbolta sem er mjög jákvætt og í takti við stefnu Nettó sem hefur undanfarin ár lagt sérstaka áherslu á styrkveitingar sem snúa að íþróttaiðkun barna og ungmenna.