Handknattleikssamband Íslands og Valitor hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli. Valitor hefur undanfarna áratugi verið bakhjarl HSÍ og fagnar HSÍ því að samstarfið við Valitor haldi áfram. Samingurinn felur meðal annars í sér stuðning fyrirtækisins við kvenna- og karlalandslið sambandsins sem og grasrótarstarfsemi HSÍ á Íslandi, með það fyrir augum að efla afreksfólk framtíðarinnar hjá HSÍ. Vörumerki Valitor verður áfram áberandi á keppnistreyjum landsliða Íslands eins og undanfarin ár, enda er tengingin á milli HSÍ og Valitor orðin flestum kunn.

HSÍ lýsir yfir ánægju sinni með samninginn og vonast til þess að eiga áfram gott samstarf við Valitor í framtíðinni. “Valitor og handboltinn á Íslandi hafa átt samleið um áratuga skeið. Það hefur verið okkur mikill heiður að fá að taka þátt í stórum sem smáum sigrum handboltalandsliðsins á undanförnum árum. Saman lítum við björtum augum til framtíðar“, sagði Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Valitor.