Úrskurður aganefndar 29. apríl 2024

Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:

Jakob Martin Ásgeirsson leikmaður FH hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklegrar hættulegrar aðgerðar í leik FH og ÍBV í úrslitakeppni Olís deild karla þann 28.04.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Er það mat aganefndar, með vísan til skýrslu dómara, að brotið kunni að verðskulda lengra bann en 1 leik. Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður strax í eins leiks bann en málinu að öðru leiti frestað um sólarhring til að gefa félaginu færi á að skila athugasemdum sínum til skrifstofu HSÍ fyrir kl.12.00, þriðjudaginn 30. apríl með tilvísun í 3.gr ofangreindar reglugerðar.

Fleiri mál lágu ekki fyrir.

Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson