Aganefnd HSÍ | Úrskurður 10.09. ’24
Úrskurður aganefndar 10. september 2024
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Þorvaldur Tryggvason leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í Hauka og Aftureldingar í Olís deildar karla þann 05.09.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Anna María Aðalsteinsdóttir leikmaður ÍR hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í Vals og ÍR í Olís deildar kvenna þann 07.09.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Miodrag Corsovic leikmaður Vals hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í Vals og ÍBV í Olís deildar karla þann 04.09.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson