Úrskurður aganefndar 02. 2024

Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:

  1. Einar Jónsson þjálfari Fram hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Fram og Hauka í úrslitakeppni Olís deildar kvenna kvenna þann 01.05.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Er það mat aganefndar, með vísan til skýrslu dómara, að brotið kunni að verðskulda lengra bann en 1 leik. Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að þjálfarinn er úrskurðaður strax í eins leiks bann en málinu að öðru leiti frestað um sólarhring til að gefa félaginu færi á að skila athugasemdum sínum til skrifstofu HSÍ fyrir kl.12.00, föstudaginn 03. maí með tilvísun í 3.gr ofangreindar reglugerðar.

Fleiri mál lágu ekki fyrir.

Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson