Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið þá sextán leikmenn sem mæta Marakkó í kvöld í þriðja leik strákanna okkar á HM í Egyptalandi. 20 leikmenn eru skráðir til leiks á HM og eru 16 á leikskýrslu hverju sinni og eru tilkynntir til leiks á leikdegi. Heimilt er að gera 5 breytingar á 20 manna lista Íslands hvenær sem er yfir mótið.

Hópurinn sem leikur gegn Marakkó í kvöld er eftirfarandi:
Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding 35/1
Björgvin Páll Gústavsson, Haukar 232/14
Bjarki Már Elísson, Lemgo 75/198
Oddur Gretarsson, Balingen-Weilstetten 22/34
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad 127/240
Magnús Óli Magnússon, Val 8/6
Elvar Örn Jónsson, Skjern 39/106
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg 28/38
Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen 184/725
Kristján Örn Kristjánsson, PAUC-Aix, 8/14
Viggó Kristjánsson, Stuttgart 15/29
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer HCC 118/340
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce 32/63
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen 56/71
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach 9/9
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen 46/21

Þeir leikmenn sem hvíla eru:
Janus Daði Smárason, Göppingen 49/69
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV 146/178
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg 51/135
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG 20/1

Leikurinn í kvöld hefst 19:30 og verður í beinni útsendingu á RÚV.