Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið þá sextán leikmenn sem mæta Alsír í kvöld í öðrum leik strákanna okkar á HM í Egyptalandi. 20 leikmenn eru skráðir til leiks á HM og eru 16 á leikskýrslu hverju sinni og eru tilkynntir til leiks á leikdegi. Heimilt er að gera 5 breytingar á 20 manna lista Íslands hvenær sem er yfir mótið.

Hópurinn sem leikur gegn Alsír í kvöld er eftirfarandi:
Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding 34/1
Björgvin Páll Gústavsson, Haukar 231/13
Bjarki Már Elísson, Lemgo 74/186
Oddur Gretarsson, Balingen-Weilstetten 21/31
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad 126/234
Magnús Óli Magnússon, Val 6/6
Elvar Örn Jónsson, Skjern 38/106
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg 27/35
Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen 183/721
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg 50/135
Viggó Kristjánsson, Stuttgart 14/26
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer HCC 117/338
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce 31/61
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen 55/70
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach 8/7
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen 45/21

Þeir leikmenn sem hvíla eru:
Janus Daði Smárason, Göppingen 49/69
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV 146/178
Kristján Örn Kristjánsson, PAUC-Aix, 8/14
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG 20/1

Leikurinn í kvöld hefst 19:30 og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Síðasti leikur Íslands í riðlakeppninni er á mánudaginn er strákarnir okkar mæta liði Marakkó.