Úrskurður aganefndar 13. maí 2025

Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:

  1. Jason Stefánsson leikmaður ÍBV hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik Hauka og ÍBV í úrslitakeppni 3.flokks karla þann 11.05.2025. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Leikbannið tekur gildi 14.05.

Fleiri mál lágu ekki fyrir.

Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson